Mamma ég mun aldrei gleyma þér.

Mamma, mér finnst svo ótrúlegt að þú sért dáin svona ung og svona skyndilega þó svo að við höfum innst inni vitað að svona færi eftir veikindin sem þú gekkst í gegnum. Lífskrafturinn þessar síðustu stundir á spítalanum lýsir þér svo vel og það var svo sárt að horfa á þig og geta ekki hjálpað þér eins og vanalega. Þú varst ótrúlega sterk og svo þrjósk að þú ætlaðir ekki að gefa eftir og vildir fara heim. Þú fékkst líka að vera heima eins lengi og hægt var þar sem þú vildir helst vera með okkur krökkunum og barnabörnunum sem þú elskaðir svo mikið. Ég man hvað þú varst stolt þegar Bjarki fæddist og þú hefur alltaf viljað hafa hann hjá þér. Hann var líka svo háður þér og kemur til með að sakna þín mikið. Við gerðum öll svo margt saman og minningarnar eru svo margar. Þú varst svo dugleg að fara með okkur í sunnudagsbíltúra, allir settir í bað áður og við Beggi greiddir til hliðar. Þá var oft farið niður á bryggju, farið í Tívolí í Hveragerði eða í Suðurver og keyptur kjúklingur sem þér þótti svo góður. Þú elskaðir að fara í sumarbústaðaferðir og vildir helst vera í heita pottinum allan tímann með krakkana í kringum þig. Þú varst mikill húmoristi og við hlógum öll mikið sama. Minningarnar eru svo margar og þeim gleymum við aldrei. Þú varst sterkur persónuleiki og stóðst á þínu.
Þú þoldir ekki óréttlæti og fals og ef einhver fór á bak við þig varðst þú virkilega reið þannig að þeir sem í hlut áttu þorðu ekki að tala við þig og þú gafst ekkert eftir. Við vorum alltaf svo góðir vinir og gátum alltaf talað saman. Ég veit að ég var ekki alltaf auðveldur en þú fyrirgafst mér alltaf og við sættumst.
Mamma, ég hugsa stöðugt um þig og finnst vera tómlegt og skrítið hérna án þín. Ég mun aldrei gleyma þér og þeim minningum sem ég á. Við stöndum þétt saman og hugsum vel um pabba eins og ég veit að þú vildir. Ég veit að þú verður alltaf hjá okkur og vakir yfir okkur og barnabörnunum þínum.
Þinn sonur,
Ari Josepsson

Ég hef lært mikið þessa daganna bæði af þér og umhverfinnu Amen.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Rán

Ég samhryggist þér Innilega Ari, mikið er leitt að þið hafið þurft að ganga í gegnum þetta. Ég get ekki annað en látið falla tár með þér megi englarnir vera með ykkur á þessum erfiðu tímum.

Ásdís Rán , 30.8.2009 kl. 16:18

2 Smámynd: Eygló Sara

Innilegar samúðarkveðjur til þin og þinna. Guð gefi þér styrk...

Eygló Sara , 30.8.2009 kl. 17:36

3 Smámynd: Ari Jósepsson

Takk fyrir ég met það mikils

Ari Jósepsson, 30.8.2009 kl. 18:21

4 Smámynd: Ómar Ingi

Innilegar samúðarkveðjur til þin og þinna.

Ómar Ingi, 30.8.2009 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

AriJosepsson

Höfundur

Ari Jósepsson
Ari Jósepsson

Hæ ég heiti  Ari Josepsson og er með Video maninu

Videoin min eru á youtube og ég er með mörg járn í eldinnum :)

Ég er landkönnuður og Leikari og svo má telja meira upp.

Búinn að ferðast um allar álfur heims og til margra landa og hef mikinn áhuga á landa fræði.

Alltaf haft gaman af landi og þjóð.

Elska Ísland og er búinn að læra það hvað við Íslendingar höfum það gott.

Miðað við önnur lönd.

Svo er ég bara ógeðslega skemtilegur :)

Áhugavert

Ný leitarstöð

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...9ari_963990
  • ...9ari_842947
  • ...star_842946
  • Miami
  • Ég elska hunda

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 39778

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband