Geðheilsumiðstöð, Geðheilsa-eftirfylgd Hugarafl

Eftir Herdísi Benediktsdóttur: "Mig langar af þessu tilefni til að benda á úrræði sem allt of fáir vita af. Á vegum Heilsugæslunnar er til Geðheilsumiðstöð, Geðheilsa-eftirfylgd."
ÞAÐ MÁ gefa sér það að geðheilsu almennings hraki þegar kreppuástand ríkir í þjóðfélaginu. Undirrituð hefur persónulega orðið vitni að því, þ.e. á geðdeild eru einstaklingar sem kreppan hefur bitið í.

Mig langar að þessu tilefni til að benda á úrræði sem allt of fáir vita af. Á vegum Heilsugæslunnar er til Geðheilsumiðstöð, Geðheilsa-eftirfylgd. Þar starfa tveir iðjuþjálfar, verðandi sálfræðingur og þrír notendafulltrúar í bata. Þar geta einstaklingar sem telja sig geta haft gagn af hlýrri og persónulegri þjónustu pantað tíma og fengið viðtöl. Tilgangur þjónustunnar er að bjóða fólki með geðræn vandamál og aðstandendum þeirra eftirfylgd og ráðgjöf. Allt starfið byggist á valdeflingu, batamódelinu og vinnu í nærumhverfi sem hefur gefið góða raun í starfinu öllu.

Starf Geðheilsu-eftirfylgd skiptist í þrjá þætti, einstaklingseftirfylgd, tengslanet með aðstandendum og hópastarf. Eftirfylgdin gefur m.a. svigrúm til að styðja einstaklinga og fjölskyldur á heimavelli og úti í samfélagið.

Tengslanet byggist á því að virkja fjölskyldu, vini og / eða aðra sem að einstaklingnum standa. Aðstandendur eru studdir við að átta sig á hlutverki sínu og þannig tekið tillit til allra aðila í tengslanetinu, þ.e. fjölskyldunnar og notandans. Haldnir eru fundir, farið í vitjanir og unnið að skipulagi tengslanets. Einnig fer fram fræðsla og ráðgjöf. Í aðstandendahópi deila aðstandendur mikilvægri reynslu sinni og eru studdir í hlutverki sínu og bjargráðum.

Samhliða Geðheilsu-eftirfylgd starfar Hugarafl. Það er hópur fólks með geðraskanir, en er í bata. Hugarafl hefur verið til í rúm fimm ár. Meginmarkmið þess er að hafa áhrif á geðheilbrigðismál. Í Hugarafli vinnur hópur notenda að sjálfseflingu og styrkist í bataferli sínu í náinni samvinnu við fagfólkið á jafningjagrunni. Markmið Hugarafls eru að skapa hlutverk, efla notendaáhrif, vinna gegn fordómum með sýnileika, vinna að verðmætasköpun út frá reynslu fólks með geðræn vandamál og atvinnusköpun með því að þróa þjónustu út frá reynslu notenda. Hugarafl hefur haldið ráðstefnur, farið á ráðstefnu í Bandaríkjunum, rekið Geðveikt kaffihús, sinnt ýmiss konar fræðsluþjónustu við spítala og annars staðar, staðið mótmælastöðu, rekur samherjaþjónustu, sinnir geðfræðslu í grunn- og framhaldsskólum o.fl. o.fl. Hópurinn notar valdeflingu sem leiðarljós sitt og er opinn þeim sem vilja og geta. Þeir sem eru í Hugarafli telja mesta ávinninginn vera að rjúfa einangrun meðlima. Allt starf er unnið á jafningjagrundvelli og fólki finnst mannbætandi að starfa með fólki með svipaða reynslusögu. Að framansögðu má sjá að í kreppu er til staður fyrir fólk sem hefur lent í geðrænum erfiðleikum. Geðheilsa-eftirfylgd og Hugarafl hafa nýlega flutt í nýja aðstöðu í Álfabakka 16, Mjóddinni. Allir eru velkomir að kynna sér starfsemina og líta til okkar.

Höfundur er notendafulltrúi og meðlimur í Hugarafli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

AriJosepsson

Höfundur

Ari Jósepsson
Ari Jósepsson

Hæ ég heiti  Ari Josepsson og er með Video maninu

Videoin min eru á youtube og ég er með mörg járn í eldinnum :)

Ég er landkönnuður og Leikari og svo má telja meira upp.

Búinn að ferðast um allar álfur heims og til margra landa og hef mikinn áhuga á landa fræði.

Alltaf haft gaman af landi og þjóð.

Elska Ísland og er búinn að læra það hvað við Íslendingar höfum það gott.

Miðað við önnur lönd.

Svo er ég bara ógeðslega skemtilegur :)

Áhugavert

Ný leitarstöð

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...9ari_963990
  • ...9ari_842947
  • ...star_842946
  • Miami
  • Ég elska hunda

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 39782

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband