Færsluflokkur: Bloggar

Reynisvatn er rosalega fallegur staður

Ég fór í langan göngutúr í kríngum Reynisvatn og það var rosalega fallegt veður úti.

Tíkin mín var voðalega ánægð að fara í göngutúr með Pabba sínum og vini.

Mér finnst að það mætti alveg malbika veg í kríngum Reynisvatn. Því þetta er svo fallegur staður.

Við vorum alveg í klukkutíma í Reynisvatni. Ég vildi deila þessu með ykkur.

 

Love Heart Ari 

 

Þetta er afrik ársíns Grin


Enda Stöð Dauðans

Er bara Landakot. Fólk bíður bara eftir dauðanum ef maður fer ekki reglulega í heimsókn.

Það er frekar lítið um að vera þarna um helgar. Nánast ekkert.

Ég fór með Afabörnin og þau glöddu hann mikið. Það var bara ekkert erfitt að vera með þau tvö.

Pabbi sagði að það væri fullur maður inná herbergi hans og ég sagði bara ok" Já ekki fara þarna inn með börnin" Við sátum frammi í eldhúsi og fengum okkur kaffi og þau eplasafa. Svo þurfti Sindi að fara á klósettið að pissa og hjúkkan var voðalega næs að fara með hann á klóstið. Þannig að það var ekkert vesen með það. Pabbi þagði allan tíman og var bara að stara á vegg. Ég huggsaði hvort hann væri með ofsjónir eða eitthvað. Enn það var ekkert sem var að ské. 

Við fórum í herbergið hans og það var enginn inni. nema hann sjálfur. Það er alveg gardínulaust á ollum spítalanum veggna smit. Enn þetta fer að lagast vonandi. Ég var voðalega stoltur að Pabbi 

var glaður og ánægður að fá okkur í heimsókn.

 

kv Ari

 


Landakot

Landakot er einn af þeim spítulum sem Íslenskaríkið gleymir.

Það kom upp smit þarna og hann var lokaður í nokkra mánuði (Deildir).

Pabbi var lagður þar inn vegna Heilabilun og Parkinson.

Honum finnst þetta bara vera nokkuð flott fyrir utan að það séu klósett frammi.

Ég sé bara draugahús fyrir framan kirkjunna. Ég er kanski neikvæður enn.

Mér líst bara ekkert á hann því það er búið að skera svo mikið niður og ekkert fyrir fólkið að gera um helgar. Það er frekar slæmt þegar sjúklingar mega ekki fara heim.

Enn maður lítur á björtu hliðinna maður reynir þó Gasp

 

Kv Ari


Þriðja Augað

Þagar ég fer að gera eitthvað og er heima í slökun og hlusta á sjávarhljóð og rólegheit.

Þá koma sögur um það að ég sé í andaglasi heima hjá mér og er blind fullur haha LoL

Enn þetta gladdi mig rosalega því mér finnst þetta bara fyndið hahaTounge

Það er greinilega alltaf verið að tala um mann, ég er einstakur Cool

Enda laðast allt fólk til mín eins og rottur haha. Enn annars var ég bara hress.

Þessi mánuður er svo leiðinnlegur og kaldur og maður er bara með kerti.

Ég er búinn að vera að skoða þriðja augað svolitið á netinnu. Og mér finnst það rosalega 

spennandi. Enn ég er ekki í Andaglasi hehe Grin

Ég hef alltaf haft áhuga á öllu þessu Jörðinni Loftinnu og öllu sem kemur þessu við.

Enn ég verð með Video blogg bráðum, og bið að heilsa öllum her Kissing


Þú gafst upp öndina

Þú gafst upp öndina og varðst svo köld, þetta kvöld.
Ég vissi ekki að Guð, væri með þessi völd.

Lífskrafturinn þinn var svo sterkur og þú baðst um að komast heim.
Ég sá þig berjast, enn það var ekkert hægt að gera.

Heima situr maður og kveikir á kerti og mynd er af þér til að minnast þín.
Þó svo maður sakni þín, þá veit ég að þú hefur það gott. Eins flott og ég man þig og sé þig í draumum og ég veit að sál þín er hér hjá okkur.

Maður lærir að lifa með þessu.
Enn lífið heldur áfram og ég veit að þú munt taka vel á móti okkur þegar kemur að því.
Við horfum fram á við.

Ari Josepsson


Amen

Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli,
þolinmæði við hluti sem taka tíma,
Þakklæti fyrir það sem ég hef
viðþol við ströggli annarra
...frelsi til að lifa án takmarkana fortíðar minnar,
hæfileika til að þekkja ást þína til mín og ást mína til annarra og
kraft til að standa upp og reyna aftur þó það virðist vonlaust

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

AriJosepsson

Höfundur

Ari Jósepsson
Ari Jósepsson

Hæ ég heiti  Ari Josepsson og er með Video maninu

Videoin min eru á youtube og ég er með mörg járn í eldinnum :)

Ég er landkönnuður og Leikari og svo má telja meira upp.

Búinn að ferðast um allar álfur heims og til margra landa og hef mikinn áhuga á landa fræði.

Alltaf haft gaman af landi og þjóð.

Elska Ísland og er búinn að læra það hvað við Íslendingar höfum það gott.

Miðað við önnur lönd.

Svo er ég bara ógeðslega skemtilegur :)

Áhugavert

Ný leitarstöð

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...9ari_963990
  • ...9ari_842947
  • ...star_842946
  • Miami
  • Ég elska hunda

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 39756

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband